logo-untiteled-1-removebg-preview

HEIMASJÚKRAÞjÁLFUN

Umsóknarferli

Sjúkraþjálfun í heimahúsum er ætluð einstaklingum sem ekki eiga heimangengt vegna heilsufarslegra ástæðna. Til þess að hefja meðferð þarf ávallt að liggja fyrir beiðni um heimasjúkraþjálfun. Slík beiðni er skrifuð af lækni og staðfestir að meðferðin skuli fara fram á heimili einstaklingsins.

Allir læknar geta skrifað beiðni um heimasjúkraþjálfun, en algengast er að heilsugæslulæknar og læknar á sjúkrahúsum annist það. Aðrir sérfræðilæknar gera það einnig. Þegar beiðni hefur verið gefin út er haft samband við þjónustustjóra Heimasjúkraþjálfunar í síma 860 4080. Þar er tekið á móti beiðninni, skráðar helstu upplýsingar og veitt svör við öllum fyrirspurnum. Reynt er að hafa biðtíma eftir heimasjúkraþjálfun eins stuttan og mögulegt er.

Beiðnir um heimasjúkraþjálfun sendast til:


Heimasjúkraþjálfun,
Pósthólf 10035
110 Reykjavík

UM FÉLAGIÐ

Heimasjúkraþjálfun, félag heimasjúkraþjálfara á höfuðborgarsvæðinu, var stofnað þann 29. maí 2015 af sautján sjúkraþjálfurum sem hafa heimasjúkraþjálfun að aðalstarfi. 

Markmið félagsins er að halda utan um heimasjúkraþjálfun á höfuborgarsvæðinu.

Fyrsta beiðnin um sjúkraþjálfun í heimahúsi var skrifuð árið 1993.  Síðan þá hefur eftirspurn farið mjög vaxandi.  Eykst hún í réttu hlutfalli við fjölgun aldraðra, fatlaðra og sjúkra sem geta ekki nýtt sér endurhæfingu utan heimilis.

Þjónustustjóri

Innan félagsins starfa stjórn, framkvæmdastjóri og þjónustustjóri.
Sigurbjörg Júlíusdóttir, sjúkraþjálfari, gegnir hlutverki þjónustustjóra og tekur á móti beiðnum um heimasjúkraþjálfun. Hún hefur milligöngu um að úthluta sjúkraþjálfara og svarar fyrirspurnum þeirra sem leita til okkar.

Stjórn félagsins

sigurbjorg_juliusdottir

Sigurbjörg Júlíusdóttir formaður

jakobina_sigurdardottir

Jakobína Edda Sigurðardóttir gjaldkeri

elin_jonsdottir

Elín S. Jónsdóttir ritari

asdis-magnusdottir

Ásdís Magnúsdóttir meðstjórnandi

birna_aubertsdottir

Birna Aubertsdóttir meðstjórnandi

Hvað er Heimasjúkraþjálfun?

Heimasjúkraþjálfun er sjúkraþjálfun sem fer fram á heimili fólks sem ekki getur sótt hefðbundna sjúkraþjálfun vegna heilsufars eða annarra aðstæðna. Meðferðin er veitt af sérhæfðum sjúkraþjálfurum sem koma heim til skjólstæðings og veita faglega þjónustu í hans eigin umhverfi.

SjúkraþjálfaraR

adalheidur_kristin_thorarinsdottir

Aðalheiður Kristín Þórarinsdóttir

S. 869-7501

allakth@heimasj.is

andres-nieto-palma

Andrés Nieto Palma

S. 778-5018

andrespalma@heimasj.is

andri-geir-jonasson

Andri Geir Jónasson

S. 857-6024

andri@heimasj.is

asdis-magnusdottir

Ásdís Magnúsdóttir

S. 699-5091

asdis@heimasj.is

birna_aubertsdottir

Birna Aubertsdóttir

S. 692-9595

birna@heimasj.is

birna_g_gunnlaugsdottir

Birna G. Gunnlaugsdóttir

S. 692-0639

bgunnlaugs@heimasj.is

birna_maria_karlsdottir

Birna María Karlsdóttir

S. 864-4377

birnakarls@heimasj.is

dadi_hafsteinsson

Daði Hafsteinsson

S. 777-5495

dadi@heimasj.is

elin_jonsdottir

Elín Jónsdóttir

S. 691-1501

elin@heimasj.is

frida_bonnie_andersen

Fríða Bonnie Andersen

S. 848-5506

bonnie@heimasj.is

gudrun_thura_kristjansdottir

Guðrún Þura Kristjánsdóttir

S. 899-0680

gudrunthura@heimasj.is

helga_augustsdottir

Helga Ágústsdóttir

S. 865-9595

helgagusta@heimasj.is

helga Apelund

Helga Aspelund

S. 698 0063

helga@heimasj.is

helgi_erlendsson

Helgi Erlendsson

S. 821-6283

helgi@heimasj.is

heidrun_helga_snaebjornsdottir

Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir

S. 896-2712

heidrunhelga@heimasj.is

hjalti_valur_thorsteinsson

Hjalti Valur Þorsteinsson

S. 848-5676

hjalti@heimasj.is

hlif_gardarsdottir

Hlíf Garðarsdóttir

S. 698-9095

hlif@heimasj.is

hlynur-helgi-arngrimsson

Hlynur Helgi Arngrímsson

S. 856-4934

hlynurarngrimsson@heimasj.is

hlynur-jonsson

Hlynur Jónsson

S. 868-9513

inga_dagmar_karlsdottir

Inga Dagmar Karlsdóttir

S. 847-1118

ingadagmar@heimasj.is

jakobina_sigurdardottir

Jakobína Sigurðardóttir

S. 893-5295

jakobina@heimasj.is

korin_mattsson

Karin Mattsson

S. 691-5005

karin@heimasj.is

kristin-osk-gisladottir

Kristín Ósk Gísladóttir

S. 846-4451

kristinosk@heimasj.is

margret_gardarsdottir

Margrét Garðarsdóttir

S. 863-0823

maggag@heimasj.is

Maríu Kristínu

María Kristín Valgeirsdóttir

S. 847-4642

mariakv@heimasj.is

monique_van_oosten

Monique van Oosten

S. 899-8456

monique@heimasj.is

sif-gylfadottir

Sif Gylfadóttir

S. 692-1808

sif@heimasj.is

sigurbjorg_juliusdottir

Sigurbjörg Júlíusdóttir

S. 690-4930

sigurbjorg@heimasj.is

skuli_palmason

Skúli Pálmason

S. 661-5295

skuli@heimasj.is

unnur_carlsdottir

Unnur Carlsdóttir

S. 698-6637

unnurcar@heimasj.is

thorunn_rakel_gylfadottir

Þórunn Rakel Gylfadóttir

S. 863-3130

thorunnrakel@heimasj.is

thorsteinn-vidar-heimisson

Þorsteinn Viðar Heimisson

S. 843-0953

thorsteinnvh@heimasj.is

Markmið

Með heimasjúkraþjálfun er átt við sjúkraþjálfunarmeðferð sem fer fram á heimili einstaklings sem er það líkamlega á sig kominn að hann getur ekki sótt meðferð á sjúkraþjálfunarstofu. Sjúklingar á öllum aldri geta haft gagn af heimasjúkraþjálfun, hvort sem um er að ræða tímabundið ástand eða langvarandi fötlun eða veikindi.

Heimasjúkraþjálfarar leggja áherslu á fagmennsku og vönduð vinnubrögð á sviði þjálfunar og endurhæfingar. Þeir mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og taka mið af hans aðstæðum og getu.

Markmið með heimasjúkraþjálfun geta verið mjög mismunandi eftir einstaklingum, þó aðaláherslan sé gjarnan á endurhæfingu til að bæta eða viðhalda færni. Þjálfunin miðar gjarnan að því að auka getu einstaklings til að takast á við athafnir daglegs lífs (ADL). Eftir viðtal, skoðun og greiningu setur sjúkraþjálfarinn upp einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun sem hann endurmetur og aðlagar eftir þörfum.

Þjálfunaráætlun getur meðal annars innihaldið markmið um að:

  • Auka vöðvastyrk, þol, göngugetu, liðleika og stöðugleika.
  • Minnka þreytu, mæði, slappleika, eymsli, verki og streitu.
  • Bæta líkamsstöðu, líðan, samhæfingu og  jafnvægi.
  • Auk leiðbeininga, fræðslu og  kennslu eftir þörfum.

 

Heimasjúkraþjálfarar leggja jafnan áherslu á að þjálfa og viðhalda bestu hreyfifærni og sjálfsbjargargetu svo að fólk geti búið sem lengst heima og annast sig sjálft.

Sjúkraþjálfarar hafa einnig heimild til að sækja um viðeigandi hjálpartæki fyrir skjólstæðinga sína, ef þeir telja þörf á slíku.

Hafa samband

Félag heimasjúkraþjálfara á höfuðborgarsvæðinu

Netfang: heimasj@heimasj.is

Sími: 860-4080

Mán til fös: 08-16

Viðtakandi beiðna um heimasjúkraþjálfun er:

Heimasjúkraþjálfun,
Pósthólf 10035 - Reykjavík